Hópar og námskeið

Rótin býður upp á eftirfarandi hópa og námskeið.

Skráning er hér.

Konur finna styrk sinn

Á námskeiðinu Konur finna styrk sinn er lögð er áhersla á að vinna með rætur vímuefnavanda og annað andstreymi í lífi kvenna. Unnið er út frá því að vímuefnanotkun sé ekki einangrað vandamál heldur eigi sér m.a. rætur í áföllum. Tekið er á þeim fjölþætta vanda sem konur með sögu um vímuefnavanda glíma við
Fyrir hverjar: Námskeiðið er ætlað konum sem eiga sögu um vímuefnavanda, jafnt konum sem hafa ekki notað vímuefni í langan tíma sem og konum sem eru að hefja vinnu við að bæta lífsgæði sín.
Markmið: Markmið námskeiðsins er að konur öðlist aukna sjálfsþekkingu sem einstaklingar en skilgreini sig ekki í gegnum sambönd eða stöðu sína. Einnig að þær átti sig á styrkleikum sínum og geti byggt framtíð sína og betra líf á þeim.

Næsta námskeið hefst í febrúar 2022.

Sjá nánar.

Áföll – Leiðir til bata

Námskeiðinu er ætlað að hjálpa konum að vinna úr afleiðingum áfalla á líf þeirra. Athyglinni er beint að þeim áföllum sem konur eru í mestri hættu á að verða fyrir eins og kynferðisofbeldi, ofbeldi í nánum samböndum og öðru ofbeldi á milli tengdra aðila. Kennd eru bjargráð sem nýtast við úrvinnslu áfalla almennt. Námskeiðið er kynjamiðað og byggt er á styrkleikanálgun.
Fyrir hverjar: Námskeið er fyrir konur sem glíma við afleiðingar áfalla. Námskeiðið hentar sérstakleg vel konum sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi.
Markmið: Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti náð sér af afleiðingum áfalla, að þær finni fyrir þeim krafti sem býr innra með þeim og veiti hverri annarri m.a. stuðning til þess að létta á skömm og sektarkennd.

Næsta námskeið hefst 30. október 2021.

Sjá nánar.

Þú ert ekki ein, við erum margar

Ástæður fjölskylduslita geta verið margvíslegar. Til dæmis geta þau orðið í kjölfar þess að konur opna umræðu um ofbeldi í skjóli fjölskyldu, hvort heldur er í kjölfar sifjaspells, kynferðisofbeldis, líkamlegs eða andlegs ofbeldis. Fjölskylduslit geta orðið að frumkvæði þolenda eða vegna útilokunar.
Fyrir hverjar: Námskeiðið er fyrir konur sem hafa upplifað fjölskylduslit.
Markmið: Markmið námskeiðsins er að konur sem hafa upplifað fjölskylduslit finni fyrir þeim krafti sem býr innra með þeim og stuðningi hver frá annarri til þess, m. a., að létta á skömm og sektarkennd og að þátttakendur öðlist betri þekkingu og skilning á aðstæðum sínum.

Námskeiðið er ekki í boði haustið 2021.

Sjá nánar.

Að segja frá

Konur sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi glíma oft við flóknar afleiðingar þess. Ein leið til valdeflingar og bata er að rjúfa þögnina sem oft ríkir um kynferðisbrot og hafa hátt! Það getur átt við að segja frá, t.d. innan fjölskyldu, vinum, samstarfsfólki, á samfélagsmiðlum eða opinberlega í fjölmiðlum. Á námskeiðinu er farið í gegnum hvernig best er að undirbúa það að rjúfa þögnina.
Fyrir hverjar: Námskeiðið er ætlað konum sem hafa hug á að opna umræðu um ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir.
Markmið: Markmið námskeiðsins er að konur geti sagt frá ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir og afleiðingum þess, eins og til dæmis fíkn og áfallastreitu, að þær finni fyrir þeim krafti sem býr innra með þeim og veiti hverri annarri stuðning til þess, m.a. að létta á skömm og sektarkennd og að gefa konum sem þess óska tækifæri til að undirbúa sig til að segja opinberlega frá á eigin forsendum.

Námskeiðið er ekki í boði haustið 2021.

Sjá nánar.

Karlar og áföll

Námskeiðið er fyrir karla og ætlað til að styðja þá á batagöngu vegna afleiðinga áfalla, finna leiðir til halda áfram að þroskast, byggja upp seiglu, öðlast meiri lífsánægju og að eiga í innilegri og innihaldsríkari samböndum. Námskeiðið heitir Exploring Trauma á ensku og höfundar þess eru Dr. Stephanie Covington og Roberto A. Rodriquez. Námskeiðið er í sex skipti í 90 mínútur í senn.
Efnið sem unnið er með er:

  • • Áfallaferlið
    • ACE-spurningalistinn
    • Vald og misnotkun
    • Skynörvun og sjálfsefjun
    • Heilbrigð sambönd

Áhersla er á þrjú lykilatriði sem nauðsynleg eru bæði fyrir starfsfólk og þá sem þiggja þjónustu: skilning á hvað tráma (afleiðingar áfalla) er, hvernig áfallaferlið er og áhrif þess á bæði líðan (hugsanir, tilfinningar, tiltrú og gildi) og breytni (hegðun og sambönd). Með auknum skilningi á áhrifum áfalla er að koma upp á yfirborðið aukinn skilningur á áhrifum áfalla á karla. Þar á meðal er þögnin um valdbeitingu karla, áhrif félagsmótunar á viðbrögð karla við misnotkun, hættuna á því að fórnarlömb verði gerendur og þörfina á því að skilja ótta karla og skömm.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Guðrún Ebba Ólafsdóttir, fræðslustjóri Rótarinnar. Kristín I. Pálsdóttir sér um verkefnisstjórn.

Sjá nánar.

Sjálfsuppgötvun og valdefling – Námskeið fyrir stúlkur og ungar konur

Námskeiðinu er ætlað að hvetja stúlkur og ungar konur til að styrkja sjálfsmynd sína og að öðlast rödd. Unglingsárin eru tími mikilla uppgötvana, áskorana og þroska. Ýmislegt í okkar kynjuðu menningu gerir þessar áskoranir snúnar fyrir stúlkur og margar þeirra ná ekki að öðlast eigin rödd eða jákvæða sjálfsímynd á þessu mikilvæga þroskaskeiði.
Fyrir hverjar: Námskeiðið er sérstaklega ætlað stúlkum og ungum konum á aldrinum 18-25 ára
Markmið: Að hjálpa stúlkum/ungum konum að skilja stöðu sína og áhrif þess að vera kona í heimi þar sem kynjamisrétti er viðvarandi, að styðja þátttakendur í úrvinnslu áfalla og beina þeim inn á braut vaxtar eftir áföll  með kynjasjónarmið að leiðarljósi og að þátttakendur öðlist aukinn skilning á hvað sjálf er, á samböndum, heilbrigðu líferni og öðlist framtíðarsýn.

Námskeiðið er ekki í boði haustið 2021.

Sjá nánar.

Rótarhópurinn

Rótin býður upp á sjálfshjálparhóp, Rótarhóp, fyrir konur sem tekið hafa þátt í leiðsagnarhópnum Konur finna styrk sinn og námskeiðum á vegum Rótarinnar. Allar konur sem eru að vinna að bættum lífsgæðum í kjölfar áfalla eru jafnframt velkomnar. Þátttaka er gjaldfrjáls en samskotum er safnað.

Rótarhópurinn er ekki í boði haustið 2021.

Sjá nánar.

Hreyfiafl Rótarinnar

Heilsuhópur Rótarinnar hittist einu sinni í viku til að rækta líkama og sál. Við förum í gönguferðir, jóga, flot eða annað sem okkur blæs í brjóst. Hópurinn hittist á mismunandi stöðum. Þátttaka er gjaldfrjáls.

Hreyfiaflið hefur ekki komið saman vegn farsóttarinnar að undanförnu og verður áfram í fríi haustið 2022.

Share This