
Konur studdar til bata
Námskeiðið Konur studdar til bata er námskeið fyrir konur þar sem lögð er áhersla á að vinna með rætur vímuefnavanda og annað andstreymi í lífi kvenna. Unnið er út frá því að vímuefnanotkun sé ekki einangrað vandamál heldur eigi sér m.a. rætur í áföllum og tekið er á þeim fjölþætta vanda sem konur með sögu um vímuefnavanda standa frammi fyrir. Námskeiðið kemur úr smiðju dr. Stephanie Covington sem er frumkvöðull í vinnu með vímuefnavanda kvenna með áfallasögu og heitir á ensku Helping women recover.
Fyrir hverjar
Námskeiðið er ætlað konum sem eiga sögu um vímuefnavanda. Skráning fer fram hér!
Markmið
Markmið námskeiðsins er að konur öðlist aukna sjálfsþekkingu sem einstaklingar en skilgreini sig ekki í gegnum sambönd eða stöðu sína. Einnig að þær átti sig á styrkleikum sínum og geti byggt framtíð sína og betra líf á þeim.
Innihald
Aðaláherslan er á fjóra þætti:
- Sjálfsmynd
- Sambönd og samskipti
- Kynverund
- Andleg heilsa
Innan þessara þátta eru undirflokkar þar sem farið er ítarlega í atriði sem talin eru mikilvæg fyrir konur á batavegi. Spurt er hvað kom fyrir konurnar í stað þess að spyrja hvað sé að þeim. Hvernig komust þær af og til hvaða bjargráða greip hver og ein þeirra. Kynntar eru nýjar aðferðir til að stuðla að bata.
Hvenær
Námskeiðið hefst 28. ágúst og því lýkur 4. desember 2019
Verð
48.000 kr.
Leiðbeinendur og verkefnisstjórn
Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Guðrún Ebba Ólafsdóttir og Katrín G. Alfreðsdóttir. Verkefnisstjóri er Kristín I. Pálsdóttir. Sjá nánar.
Skipulag
Alls er um að ræða 16 skipti, hvert skipti er 90 mínútur frá kl. 17.15–18.45 á miðvikudögum og tvisvar á mánudegi. Fyrirhugað er að bjóða einnig upp á dagnámskeið á sama tímabili ef áhugi er á því.
Dagsetningar kl. 17.15-18.45:
Tími | Vikudagur | Dagsetning |
1 | miðvikudagur | 28. ágúst |
2 | miðvikudagur | 4. september |
3 | miðvikudagur | 11. september |
4 | miðvikudagur | 18. september |
5 | miðvikudagur | 25. september |
6 | miðvikudagur | 2. október |
7 | miðvikudagur | 9. október |
8 | miðvikudagur | 16. október |
9 | mánudagur | 28. október |
10 | miðvikudagur | 30. október |
11 | miðvikudagur | 6. nóvember |
12 | miðvikudagur | 13. nóvember |
13 | miðvikudagur | 20. nóvember |
14 | miðvikudagur | 27. nóvember |
15 | mánudagur | 2. desember |
16 | miðvikudagur | 4. desember |
Hámarksfjöldi er 10 þátttakendur.
Þátttakendur eru hvattir til að sækja fundi í Rótarhópnum á miðvikudögum kl. 19.15 að loknu námskeiðinu.