Aðalfundur Rótarinnar verður haldinn 14. maí í Kvennaheimilinu að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík kl. 19.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf sbr. lög félagsins. Kosið verður í ráð félagsins en í því sitja níu félagar og fer ráðið með ákvörðunarvald félagsins milli aðalfunda. Einnig skulu kosnir þrír varafulltrúar í ráðið.

Þeir sem vilja gefa kost á sér í ráð félagsins eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Kristínu ritara í netfanginu rotin@rotin.is.

Athugið að tillögur um lagabreytingar skal leggja fram til ráðs a.m.k fimm daga fyrir aðalfund eða eigi síðar en laugardaginn 10. maí.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Fundur settur.
  2. Kosning fundarstjóra og fundarritara.
  3. Skýrsla ráðs fyrir liðið starfsár.
  4. Reikningar félagsins lagðir fram og samþykktir.
  5. Kosning aðal- og varafulltrúa í ráð.
  6. Kosning á skoðunaraðila reikninga.
  7. Ákvörðun félagsgjalda.
  8. Lagabreytingar.
  9. Tillaga ráðs um starfsáætlun næsta starfsár.
  10. Önnur mál.
  11. Fundarslit.

Gildi gremjunnar – umræðukvöld

Etir að aðalfundi lýkur verður Sólveig Anna Bóasdóttir hjá okkur á umræðukvöldi og fjallar um gildi gremjunnar. Sólveig Anna er er dósent við guðfræði- og trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands í guðfræðilegri siðfræði.

Sólveig Anna hefur áður komið til okkar og rætt um fyrirgefninguna en að þessu sinni mun hún fjalla um um gildi gremjunnar fyrir einstaklinga og samfélög.

Við bjóðum upp á ljúffenga grænmetissúpu frá Bergsson mathúsi gegn vægu verði. Vinsamlegast sendið póst á rotin@rotin.is til að panta hana.

Allir, konur og karlar, eru velkomnir á umræðukvöld Rótarinnar!

Boðið er upp á te og kaffi en við erum með samskot fyrir því svo komið endilega með klink í baukinn.

Viðburðurinn er á Facebook!

Umræðukvöldið er í Kvennaheimilinu Hallvegiarstöðum, Túngötu 14, 101 Reykjavík.

Share This