Konur finna styrk sinn

Námskeiðið Konur finna styrk sinn (e. Helping women recover) er leiðsagnarhópur fyrir konur þar sem lögð er áhersla á að vinna með rætur áfengis- og vímuefnavanda og annað andstreymi í lífi kvenna. Unnið er út frá því að vímuefnanotkun sé ekki einangrað vandamál heldur eigi sér m.a. rætur í áföllum. Tekið er á þeim fjölþætta vanda sem konur með sögu um vímuefnavanda glíma við. Unnið er með efni úr smiðju dr. Stephanie Covington sem er frumkvöðull í vinnu með vímuefnavanda kvenna með áfallasögu. Á milli tíma er verkefnavinna sem þátttakendur eru hvattar til að vinna svo að þær fái sem mest út úr námskeiðinu og fá þátttakendur veglega vinnubók.

Fyrir hverjar
Námskeiðið er ætlað konum sem eiga sögu um vímuefnavanda. Það hentar jafnt konum sem hafa ekki notað vímuefni í langan tíma sem og konum sem eru að hefja vinnu við að bæta lífsgæði sín. Hámarksfjöldi er venjulega 10 þátttakendur en vegna sóttvarnaráðstafana eru nú einungis sex pláss í boði.

Markmið
Markmið námskeiðsins er að konur öðlist aukna sjálfsþekkingu sem einstaklingar en skilgreini sig ekki í gegnum sambönd eða stöðu sína. Einnig að þær átti sig á styrkleikum sínum og geti byggt framtíð sína og betra líf á þeim.

Innihald
Aðaláherslan er á fjóra þætti: Sjálfsmynd, samskipti, kynverund og andlega heilsu. Innan þessara þátta eru undirflokkar þar sem farið er ítarlega í atriði sem eru mikilvæg til að auka lífsgæði og kynntar nýjar aðferðir sem stuðla að þeim. Spurt er hvað kom fyrir konurnar í stað þess að spyrja hvað sé að þeim, hvernig þær komust af og til hvaða bjargráða greip hver og ein þeirra.
Samþykktir fyrir námskeið og hópa Rótarinnar gilda á námskeiðinu eins og í öðru starfi félagsins.

Hvenær?
Hópurinn hittist 10 sinnum í u.þ.b. 90 mínútur í hvert skipti. Næsta námskeið hefst 9. febrúar 2022.  Allir tímarnir hefjast stundvíslega kl. 16:30 og lýkur yfirleitt kl. 18:00 og aldrei seinna en upp úr kl. 18:30.

Þátttökugjald er 36.000 kr.

Skráning í hópinn.

Dagsetningar

Tími Dagsetning Tími Dagsetning
1 9. febrúar 6 7. mars
2 14. febrúar 7 9. mars
3 16. febrúar 8 16. mars
4 23. febrúar 9 23. mars
5 2. mars 10 30. mars

Leiðbeinandi og verkefnisstjórn

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Guðrún Ebba Ólafsdóttir. Verkefnisstjóri er Kristín I. Pálsdóttir.

Námskeiðið er niðurgreitt með styrkjum frá Lýðheilsusjóði og heilbrigðisráðuneyti.

Hámarksfjöldi er 10 þátttakendur.

Share This