24. ágúst 2018

Á komandi vetri býður Rótin upp á hópastarf fyrir konur sem glímt hafa við fíknivanda þar sem lögð er áhersla á að fíknivandi sé afleiðing af áfalli (ens. trauma) og/eða öðrum fjölþættum vanda í lífi kvenna og að neyslan sé einkenni en ekki frumorsök. Aðaláhersla í hópunum er á fjóra þætti, sem eru: sjálfsmynd, sambönd og samskipti, kynverund og andlegt líf. Sjá nánar um hópastarfið hér fyrir neðan.

Rótin fer af stað með hópana í samstarfi við Janus endurhæfingu og er fullbókað í þann hóp, sem hittist kl. 17:15 á þriðjudögum, en nokkur sæti eru laus í daghóp sem hittist  á þriðjudögum  kl. 13:00-14:30.

Starfið í daghópnum hefst þriðjudaginn 28. ágúst og því óskum við eftir umsóknum eigi síðar en sunnudaginn 26. ágúst.

Eyðublað vegna umsóknar um þátttöku er hér. Einnig er hægt að senda tölvupóst á rotin@rotin.is með upplýsingum um nafn, kennitölu, netfangi og símanúmeri og gefa upp hvort þátttakandi er skráður í Rótina.

Innan þáttanna fjögurra, sem nefndir eru hér að framan, eru undirflokkar þar sem farið er ítarlega í þau atriði sem talin eru mikilvæg fyrir konur í bataferli.

Í hópastarfinu er spurt hvað kom fyrir konurnar í stað þess að spyrja hvað sé að þeim. Hvernig þær hafi komist af og til hvaða bjargráða hver og ein þeirra hafi gripið. Kynntar eru nýjar aðferðir til að takast á við vandann í stað neyslu. Markmiðið er að konurnar öðlist aukna sjálfsþekkingu sem einstaklingar, í stað þess að skilgreina sig í gegnum sambönd eða stöðu sína, að þær finni styrkleika sína og geti byggt framtíð sína og betra líf á þeim.

Fyrirhugað er að stofna sjálfshjálparhópa, Rótarhópa, í kjölfarið.

. Hvert skipti er 90 mínútur frá kl. 13.00–14.30. Þátttökugjald fyrir hópastarfið er kr. 12.000.

Dagsetningar:

Sjálfsmynd                             28. ágúst, 4. og 11. september

Sambönd og samskipti          18., 21., 25 og 27. september og 2. október

Kynverund                              16., 18., 23. og 30. október og 6. nóvember

Andleg upplifun                     13., 20. og 27. nóvember

Hópastarfið fer fram í húsnæði Janusar endurhæfingar, Skúlagötu 19.

Leiðbeinendur: Katrín Alfreðsdóttir og Gunnhildur Kristjánsdóttir.

Skráning fer fram á síðu Rótarinnar til 10 ágústHaft verður samband við allar sem sækja um áður en hópastarfið hefst.

Sjá enn fremur https://www.rotin.is/konur-studdar-til-bata/.

Bókin A Woman’s Journal. Helping Women Recover sem er vinnubóká ensku fyrir þátttakendur er til sölu hjá félaginu á 6.000 kr. Verkefni í námskeiðinu verða einnig afhent á lausum blöðum á íslensku og það er hverri konu í sjálfsvald sett hvort að hún kaupir bókina. Vinsamlega sendið inn pöntun hér.

Nánar um leiðbeinendur:

Katrín Alfreðsdóttir er félagsráðgjafi og fjölskyldufræðingur Hún fór á ráðstefnuna og námskeiðið Covington Curriculum Conference, í Connecticut í Bandaríkjunum, um aðferðir Stephanie S. Covington sem er sérfræðingur og frumkvöðull í meðferð kvenna með fíknivanda. Covington var aðalfyrirlesari á ráðstefnu Rótarinnar og samstarfsaðila um konur og fíkn haustið 2015. Katrín situr í ráði Rótarinnar.

Guðrún Ebba Ólafsdóttir er grunnskólakennari og kennir lífsleikni og ensku í Laugalækjarskóla. Hún hefur leitt hópa í Stígamótum og Drekaslóð. Guðrún Ebba hefur tekið virkan þátt í starfi á þessu sviði undanfarin ár. Í október 2011 kom út saga hennar sem Elín Hirst skráði með henni, Ekki líta undan. Hún hefur setið í ráði Rótarinnar frá stofnun.

Verkefnið er unnið í samstarfi við Janus endurhæfingu og styrkt af velferðarráði Reykjavíkurborgar, Velferðarráðuneyti og Lýðheilsusjóði.

 

Share This