Þórlaug Ágústsdóttir, Áslaug Árnadóttir, Katrín Guðný Alfreðsdóttir, Guðrún Ebba ólafsdóttir og Kristín I. Pálsdóttir. Á myndinga vantar Eddu Arinbjarnar.

Þórlaug Ágústsdóttir, Áslaug Árnadóttir, Katrín Guðný Alfreðsdóttir, Guðrún Ebba ólafsdóttir og Kristín I. Pálsdóttir. Á myndinga vantar Eddu Arinbjarnar.

Umræða um fíkn hefur tekið miklum stakkaskiptum á þeim árum sem liðin eru frá því að Rótin var stofnuð enda er löngu tímabært að endurskoða íslenska meðferðarkerfið.

Á innan við ári hafa tveir alþjóðlegir fyrirlesarar í fremstu röð heimsótt Ísland og fjallað um tengsl fíknar og áfalla. Stephanie Covington, frumkvöðull á sviði áfallameðvitaðrar meðferðar við fíknivanda kvenna, kom sl. haust í boði Rótarinnar og fleiri aðila og fjallaði um mikilvægi þess að meðferð sé kynjamiðuð, kærleiksrík og valdeflandi.
Hinn 12. júní sl. hélt svo kanadíski læknirinn og rithöfundurinn Gabor Maté fyrirlestra í Hörpu um lífsálfélagslega (e. biopsychosocial) kenningu um fíkn, en eftir því sem rannsóknum á áhrifum lífsreynslu og erfiðra upplifana í æsku fjölgar verða æ skýrari tengslin á milli áfallareynslu, fíknar og annars heilsufarsvanda síðar á ævinni.

Félagasamtök áhugafólks um fíknivandann, SÁÁ, fær bróðurpart þess fjármagns sem notað er til meðferðar við fíknivanda hér á landi. Minnesóta-módel þeirra byggist á þeirri umdeildu kenningu að fíkn sé ólæknandi heilasjúkdómur sem allir þurfi svo til sömu meðferð við og markmið meðferðarinnar er að fólk fari inn í AA-samtökin.

Ekki í þekkingarleit
En hver eru viðbrögð SÁÁ við þeirri umræðu sem hér hefur farið af stað um nýja þekkingu á sviði fíknifræða? Viðbrögðin sýna að samtökin eru ekki í þekkingarleit en mæta allri umræðu um málaflokkinn, sem ekki er stjórnað af samtökunum, með þöggunartilburðum og hroka. Ef marka má Þórarin Tyrfingsson er staða þekkingar innan SÁÁ yfir allt hafin. „Hér höfum við safnað allri þeirri þekkingu sem til er um áfengissýki og vímuefnafíkn,“ segir hann í myndbandi á vef samtakanna (https://youtu.be/6oN23mPKFhI?t=417). Læknafélag Íslands eða Embætti landlæknis ættu að skoða þennan málflutning sem virðist skýrt brot á 20. gr. siðareglna lækna sem segir þeim ósæmandi að gefa yfirburði sína í skyn og upphefja eigin þekkingu.

Síðan við Rótarkonur hófum okkar mannréttindabaráttu höfum við fengið ákúrur fyrir að vera hrokafullar, fordómafullar, á fallbraut og fleira persónulegt en við höfum aldrei fengið málefnalega gagnrýni. Okkur berast fréttir af því að þar sem okkur er veitt áheyrn fylgi í kjölfarið upphringingar frá forráðamönnum SÁÁ sem finnst greinilega að málfrelsi okkar sé ofaukið. Fjölmiðlamenn sem taka viðtöl við okkur fá skammir, stjórnmálamönnum er sagt til syndanna og embættismenn fá bæði reiðilestra og stofnanir formlegar kvartanir.

Gabor Maté er umdeildur en hann er áhugaverður fyrirlesari og kenningar hans um fíkn byggja á áreiðanlegum vísindarannsóknum m.a. í þroskasálarfræði. Maté, sem er ungverskur gyðingur, talar um áhrif stress á ungbörn og tekur sjálfævisögulegt dæmi um að afi hans hafi verið myrtur í helförinni og að líf fjölskyldunnar, á tímum seinni heimsstyrjaldarinnar, hafi því einkennst af ótta og stressi fyrstu æviár Matés. Slíkt ástand hefur áhrif á taugaþroska barna.

Formaður SÁÁ, Arnþór Jónsson, sér ástæðu til að gera lítið úr Maté og snúa út úr orðum hans í Facebook-færslu, sem farið hefur víða um netið, þar sem Arnþór segir að Maté vilji „meina að áfallið sem afi lenti í þegar fauk á hann bátur fyrir 100 árum sé ástæðan fyrir fíknsjúkdómi dagsins í dag og rétta meðferðin að fá sér brasilíska sýrusveppasúpu svo maður geti tengst sjálfum sér (og afa) á astralsviðinu og losnað þannig við sársauka liðinna kynslóða“. Í þættinum Harmageddon 15. júní heldur hann svo áfram að snúa út úr orðum Maté á neyðarlegan hátt.

Svona málflutningur er sorglegur og áhyggjuefni að hann komi frá formanni samtaka áhugamanna sem fá um milljarð á ári, á núgildandi fjárlögum er hækkun um u.þ.b. 100 milljónir frá síðasta ári, úr opinberum sjóðum til að reka meðferð við „langvinnum heilasjúkdómi“.

Hvernig stendur á því að þessi stóru almannaheillasamtök sætta sig við svo ómálefnalega og ófaglega forystu?

Áslaug Árnadóttir
Edda Arinbjarnar
Guðrún Ebba Ólafsdóttir
Katrín Guðný Alfreðsdóttir
Kristín I. Pálsdóttir
Höfundar eru í ráði og vararáði Rótarinnar.

Grein birtist fyrst í Fréttablaðinu 30. júní 2016.

Share This