Úthlutað var úr fræðslusjóði Rótarinnar í fyrsta sinn í dag, 31. október 2017, og voru veittir þrír 100.000 kr. styrkir til meistaranema til ritunar lokaverkefna.

Í valnefnd sjóðsins sitja Kristínu I. Pálsdóttur, talskona Rótarinnar og Margréti Valdimarsdóttur, ritari Rótarinnar ásamt Þórunni Sveinbjarnardóttur, formanni sjóðsstjórnarinnar, sem afhenti viðurkenningarnar í dag.

Styrkþegarnir eru allar nemar, annars vegar í Háskóla Íslands og hins vegar í Háskólanum í Reykjavík, og stefna á útskrift vorið 2018. Þessir fyrstu styrkþegar fræðslusjóðsins eru:

  • Lovísa María Emilsdóttir, nemi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Verkefni hennar fjallar um Konukot, neyðarathvarf fyrir heimilislausar konur út frá sjónarhóli félagsráðgjafa.
  • Margrét Lára Viðarsdóttir,  nemi í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík. Verkefni hennar fjallar um spilafíkn og -vanda kvenna á meðal körfu- og handboltaiðkenda á Íslandi.
  • Valgerður Jónsdóttir, nemi í kynjafræði við Háskóla Íslands. Fjallar verkefni hennar um konur með tvígreiningar, það er að segja konur sem bæði glíma við fíknivanda og geðsjúkdóm.

Fræðslusjóður Rótarinnar var stofnaður að Kvennaheimilinu á Hallveigarstöðum 26. mars 2015 að frumkvæði Þórunnar Sveinbjarnardóttur. Stofnun hans var möguleg vegna stofnframlaga þeirra sem vilja halda nafni Önnu Kristínar Ólafsdóttur stjórnsýslufræðings á lofti. Anna Kristín lést aðeins 49 ára gömul vorið 2013. Hún var kvenfrelsiskona og alla tíð baráttukona fyrir bættri stöðu kvenna og barna.

Fræðslusjóði Rótarinnar er ætlað, í samræmi við markmið félagsins, að kosta rannsóknir á viðfangsefnum sem snerta konur, fíkn og áföll og að nýtast til fræðslustarfs og ráðstefnuhalds.

Lovísa María Emilsdóttir, nemi í félagsráðgjöf

Margrét Lára Viðarsdóttir, nemi í klínískri sálfræði

Valgerður Jónsdóttir, nemi í kynjafræði

Share This