Fjölsóttasti viðburður Rótarinnar á síðasta starfsári var þegar Gyða Eyjólfsdóttir og Monika Skarphéðinsdóttir, sem báðar eru sálfræðingar, komu til okkar og fræddu okkur um svokallaða Ace-rannsókn á áhrifum erfiðra upplifana í æsku á heilsufar síðar á ævinni. Nú ætla þær stöllur að koma aftur til okkar og í þetta sinn ætla þær að kynna fyrir okkur svokallaða EMDR áfallameðferð.

Gyða er með doktorsgráðu í ráðgjafarsálfræði frá The University of Texas í Austin. Hún skrifaði doktorsritgerðina sína um sálfélagslegar hliðar grindargliðnunar á meðgöngu og fékk þá áhuga á erfiðum upplifunum í æsku og áhrifum þeirra á einstaklinginn síðar á lífsleiðinni. Hún ákvað að læra EMDR áfallameðferð til að geta aðstoðað einstaklinga við að vinna úr áföllum og erfiðum upplifunum og hefur sérhæft sig í henni. Þannig vinnur hún með skjólstæðingum sínum að úrvinnslu áfalla, bæði stórra og smárra, auk þess sem hún handleiðir aðra EMDR meðferðaraðila og heldur námskeið í tengslum við EMDR áfallameðferð. Hún hefur líka sérhæft sig í tilfinningahliðum ófrjósemi.

Monika Skarphéðinsdóttir er sálfræðingur með cand. psych. gráðu frá Háskóla Íslands. Frá útskrift hefur hún unnið með Þórdísi Rúnarsdóttur, Psy. D., sálfræðingi og Gyðu Eyjólfsdóttur sálfræðingi í málum sem hafa með sérsvið þeirra að gera. Þannig vinnur hún að ófrjósemis- og áfallamálum með Gyðu og hjónamálum með Þórdísi. Monika hefur sérstakan áhuga á áfallamálum, tengslum atburða í æsku við líðan skjólstæðinga og úrvinnslu þeirra. Monika er að ljúka námi í EMDR áfallameðferð og hyggur á frekari námskeið á því sviði til að bæta við sína sérhæfingu.
Hér má kynna sér EMDR frekar: www.emdr.is.

Umræðukvöldið verður haldið hinn 8. október kl. 20 að Hallveigarstöðum, Túngötu 14, Reykjavík.

Allir, konur og karlar, eru velkomnir á umræðukvöld Rótarinnar!

Boðið er upp á te og kaffi en við erum með samskot fyrir því svo komið endilega með klink í baukinn.

Viðburðurinn er á Facebook!

Share This